Hér finnur þú algengar spurningar um Rosonia vörurnar.
Fróðleikur
Algengar spurningar um Rosonia
Algengar spurningar um Smaronia
Hér finnur þú algengar spurningar um Smaronia.
Algengar spurningar um Sefitude
Hér finnur þú algengar spurningar um jurtalyfið Sefitude.
Það er hægt að fyrirbyggja mígreni!
Samtök amerískra taugækna og Amerísku höfuðverkjasamtökin mæla með notkun á jurtinni glitbrá til að fyrirbyggja mígreni. Niðurstöður klínískra rannsókna á glitbrá benda til þess að reglubundin notkun geti fækkað mígrenisköstum, ásamt því geta köstin orðið vægari og styttri.
(meira…)Einföld ráð til að minnka kvíða og stress
Þegar við fetum lífsins veg verða á vegi okkar mis krefjandi áskoranir, minniháttar erfiðleikar og meiriháttar áföll – sem geta skapað streitu og kvíða. Ómögulegt er fyrir nokkurn mann að stjórna aðstæðum hverju sinni, en við getum gert okkar allra besta til að hafa stjórn á því hversu mikil áhrif slíkar áskoranir hafa á líðan okkar.
(meira…)Samspil svefns og kvíða
Kvíði er náttúrulegt viðbragð líkamans við erfiðum aðstæðum, álagi eða aðsteðjandi hættu. Kvíðaviðbrögð einstaklinga geta verið margvísleg og einstaklingsbundinn munur getur verið á hvenær viðbrögðin virkjast. Það eitt að einstaklingur dragi þá ályktun að honum standi ógn að einhverju í umhverfi sínu getur virkjað kvíðaviðbrögð. Ógnin þarf ekki að vera raunveruleg, en viðbrögðin eru það svo sannarlega.
(meira…)Hvað er jurtalyf?
Fólk hefur frá örófi alda leitað til náttúrunnar sér til lækninga. Þegar fyrstu hefðbundnu lyfin komu á markað, fyrir um hundrað árum, voru um að ræða efni sem einangruð voru úr plöntum. Síðar tóku efnasmíðuð lyf við af jurtalyfjum. Síðastliðin ár má þó segja að áhugi Vesturlandabúa á jurtalyfjum og náttúruvörum hafi gengið í endurnýjun lífdaga og ber gífurlegt framboð þeirra í verslunum og apótekum þess vitni.