Hér finnur þú algengar spurningar um jurtalyfið Sefitude.

Hver er ráðlagður dagskammtur af Sefitude?
Ef Sefitude er notað við vægum kvíða mega fullorðnir taka 1 töflu allt að 3 sinnum á dag. Ef lyfið er notað til þess að auðvelda svefn er ráðlagt að taka 1 töflu hálfri til einni klukkustund fyrir svefn, ein aukatafla fyrr að kvöldi ef þörf krefur.

Ungmenni 12-18 ára er ráðlagt að taka 1 töflu af Sefitude allt að tvisvar á dag við vægum kvíða. Sé lyfið notað við svefntruflunum er ráðlagt að taka 1 töflu hálfri til einni klukkustund fyrir svefn.

Af hverju byrjar Sefitude ekki að virka fyrr en eftir 2-4 vikna samfellda notkun?
Ástæða þess að ráðlagt er að taka Sefitude í 2-4 vikur á meðan ákjósanleg áhrif koma fram er að upptakan á lyfinu er hæg og eykst yfir tíma, ólíkt hefðbundnum svefnlyfjum þar sem upptaka er hraðari. Hámarksverkun næst því ekki fyrr en eftir samfellda notkun til lengri tíma. Það er þó alveg mögulegt að einstaklingar geti fundið fyrir áhrifum á Sefitude fyrr.

Er Sefitude ávanabindandi?
Sefitude hefur ekki ávanabindandi verkun og því má selja það án lyfseðils í apótekum.

Má taka Sefitude með öðrum svefn- eða kvíðalyfjum? 
Það eru engar skráðar milliverkanir milli Sefitude og annarra lyfja og því er óhætt að nota Sefitude samhliða öðrum lyfjum.

Er í lagi að taka Sefitude bæði við kvíða og við svefntruflunum?
Sefitude er ætlað til notkunar bæði við kvíða og svefntruflunum. Í slíkum tilfellum er æskilegt að einstaklingar eldri en 18 ára taki tvær yfir daginn og þriðju töfluna um 1 klst fyrir svefn. Lyfið nær mestum styrk 1-1,5 klst eftir inntöku og hefur þá mest áhrif. Fullorðnir skulu aldrei taka fleiri en 4 töflur á sólarhring, hámarksskammtur barna 12 ára og eldri eru 2 töflur á sólarhring.

Hve lengi vara áhrif af Sefitude?
Það er erfitt að segja til um hve lengi áhrifin vara þar sem það getur verið mismunandi á milli einstaklinga. Virkni lyfsins eykst með reglulegri notkun í 2-4 vikur eins og er nokkuð algengt er með lyf í þessum flokki. Rannsóknir benda til þess að hámarksstyrkur í blóði sé um 1-1,5 klst eftir inntöku og búast má við að efnið finnist í blóði í um 5 klst eftir inntöku, þó líklega hafi dregið allverulega úr áhrifum. Út frá þessum gögnum er mælt með að taka kvöldskammtinn um klukkustund fyrir svefn svo að lyfið virki sem best.

Eykur áfengi virkni Sefitude og öfugt?
Nei, hóflegt áfengi hefur ekki áhrif á verkun Sefitude, né öfugt.

Er Sefitude laktósafrítt?
Sefitude er laktósafrítt en inniheldur súkrósa.

Byggist upp þol gegn áhrifum Sefitude eftir langvarandi notkun?
Rannsóknir hafa ekki sýnt fram á að áhrif Sefitude minnki með langvarandi notkun og það er tiltölulega algengt að fólk taki lyfið inn til lengri tíma.

Er Sefitude sambærilegt við Jóhannesarjurt?
Sefitude, sem inniheldur jurtina garðabrúðurót (e. Valeriana), er ekki sambærilegt við lyf sem innihalda jóhannesarjurt þar sem þessar jurtir hafa afar ólíka verkun. Jóhannesarjurt er fyrst og fremst notuð til að meðhöndla vægt þunglyndi og depurð en Sefitude er notað til að draga úr vægum kvíða og auðvelda fólki að sofa. Jóhannesarjurt er ekki fáanleg á Íslandi og ólöglegt er að selja lyf sem inniheldur jurtina, nema með leyfi frá Lyfjastofnun, þar sem jurtin hefur áhrif á virkni mjög margra lyfja. Sefitude er skráð sem jurtalyf hjá Lyfjastofnun og hefur viðurkennda virkni gegn vægum kvíða og svefntruflunum. Það hefur ekki nein þekkt áhrif á virkni annara lyfja, né ávanabindandi áhrif og er selt án lyfseðils í öllum apótekum á Íslandi.