Íslenskar sumarnætur eru einstakar og kærkomnar. Þegar sólin skín á ný eftir myrkan vetur vakna margir upp af dvala og fyllast orku en sumir eiga erfitt með að sofa í allri þessari birtu.

Svefntruflanir eru meðal algengustu heilsufarsvandamála fólks sem býr á norðurhveli jarðar og eru Íslendingar þar engin undantekning [1]. Þar spila saman mikil birta yfir sumartímann og mikið myrkur yfir vetrartímann, en þessi munur á ljósi hefur bein áhrif á líkamsklukkuna okkar [2]. Rannsóknir hafa sýnt að þegar bjart er úti allan sólarhringinn þá tekur það fólk lengri tíma að sofna, það sefur skemur, vaknar oftar á nóttunni og hreyfir sig meira í svefni [3].

Talið er að einn af hverjum þremur fullorðunum Íslendingum þjáist af svefnleysi einhvern tímann á ævinni og einn af hverjum sjö þrói með sér langvinnt svefnleysi. Margar ástæður geta legið þar að baki eins og t.d. álag, áhyggjur, verkir, barnauppeldi, vaktavinna eða sjúkdómar [4]. Á þessum árstíma er birtan líka að trufla marga, en fólk sefur oft um klukkustund skemur á nóttu en um veturna. Birtan hefur áhrif á heilann því hún hemur framleiðslu hormóna sem gera okkur syfjuð. Við erum einfaldlega minna þreytt þegar við erum umvafin birtu allan sólarhringinn. Það þýðir samt ekki að við þurfum að hvílast minna. Svefn er enn jafn mikilvægur þó bjart sé úti, bæði fyrir andlega heilsu en einnig líkamlega. Svefntruflanir eru fljótar að hafa áhrif á líðan okkar og frammistöðu. Fólk finnur strax fyrir þreytu yfir daginn, lakari einbeitingu, eirðarleysi og er ekki eins vel í stakk búið að takast á við sín daglegu verkefni eins og þegar það er úthvílt. Langvarandi svefnskortur hefur sérstaklega slæm áhrif á heilsuna og eykur líkur á depurð, þunglyndi og kvíða [5].

Eina lyfið án lyfseðils við svefntruflunum

Jurtalyfið Sefitude frá Florealis er eina lyfið á Íslandi við svefntruflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils í apótekum. Lyfið inniheldur útdrátt úr garðabrúðurót (Valeriana) en róandi áhrif jurtarinnar hafa lengi verið viðurkennd og staðfest í klínískum samanburðarrannsóknum. Jurtalyfið getur stytt tímann sem það tekur að sofna og bætt svefngæði. Sefitude er tekið inn að kvöldi og hjálpar viðkomandi að róast og sofna.

Það getur dregið úr því að fólk vakni oft upp á nóttunni og stuðlar þannig að samfelldum svefni. Sefitude hentar því sérstaklega vel þeim sem upplifa svefntruflanir yfir björtustu mánuðina. Verkun jurtarinnar kemur fram smám saman og til að ná ákjósanlegum áhrifum er mælt með samfelldri notkun í 2-4 vikur. Sefitude er hvorki sljóvgandi né ávanabindandi og má nota allt frá 12 ára aldri. Jurtalyfið er góður kostur fyrir þá sem ekki vilja nota lyfseðilsskyld svefnlyf.

Gagnlegar upplýsingar

Notkun við svefntruflunum: 1 tafla ½-1 klst fyrir svefn fyrir 12 ára og eldri. Notkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 sinnum á dag fyrir 12-18 ára. Hámarksskammtur fyrir 12-18 ára eru 2 töflur en 4 töflur fyrir fullorðna. Ekki ætlað yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.

Heimildaskrá

[1] V. K. Chattu, D. Manzar, S. Kumary, D. Burman, D. W. Spence and S. R. Pandi-Perumal, „The global problem of insufficient sleep and its serious public health implications,“ Healthcare, vol. 7, no. 1, pp. 1-16, 2019.
[2] T. Roenneberg, C. J. Kumar and M. Merrow, „The human circadian clock entrains to sun time,“ Current Biology, vol. 17, no. 2, p. R44, 2007.
[3] N. Pattyn, M. V. Puyvelde, H. Fernandez-Tellez, B. Roelands and O. Mairesse, „From midnight sun to the longest night: Sleep in Antarctica,“ Sleep medicine reviews, vol. 37, pp. 159-172, 2018.
[4] E. Landlæknir, „Talnabrunnur 12.árgangur 3.tölublað,“ Embætti landlæknis, Reykjavik, 2018.
[5] M. A. Paul, R. J. Love, A. Hawton and J. Arendt, „Sleep and the endogenous melatonin rhythn of high arctic residents during the summer and winter,“ Physiology and Behavior, vol. 141, pp. 199-206, 2015.