Blöðrubólgur eða þvagfærasýkingar eru sérstaklega algengar á meðal kvenna. Sumar fá slíkar sýkingar endurtekið. Lyngonia frá Florealis er viðurkennt jurtalyf við endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum en það inniheldur útdrátt úr sortulyngi. Um er að ræða fyrsta jurtalyfið á Íslandi sem var viðurkennt af Lyfjastofnun. Þar sem að sortulyngið í Lyngonina er á meðal elstu lækningajurta sem notaðar hafa verið á Íslandi þá tókum við saman smá fróðleik um þessa frábæru jurt og lyfjavirkni hennar.

Saga notkunar

Sortulyng (Arctostaphylos uva-ursi) hefur verið notað til lyfjagerðar allt frá annarri öld eftir Krist. Það hefur verið notað við ýmsum kvillum, til að mynda sem þvagræsandi, sótthreinsandi, við nýrnabólgu og nýrnasteinum. Frumbyggjar Ameríku hafa notað jurtina við höfuðverk, til að koma í veg fyrir skyrbjúg og til að meðhöndla þvagfærasýkingar. Áður en súlfalyf voru uppgötvuð var aðallega notað sortulyng við blöðrubólgu og skyldum sýkingum. Enskt heiti jurtarinnar er ,,bearberry” og eru laufblöð hennar nýtt til lyfjagerðar.

 

Viðurkennd notkun Til að meðhöndla einkenni af vægri, endurtekinni þvagfærasýkingu, eins og brunatilfinningu við þvaglát og/eða tíð þvaglát hjá konum, eftir að alvarlegri sýkingar hafa verið útilokaðar.
Aukaverkanir Þekktar aukaverkanir eru magaverkir, ógleði og uppköst. Tíðni aukaverkanna er ekki þekkt.
Meðganga og brjóstagjöf Ekki er mælt með því að taka lyfið á meðgöngu eða við brjóstagjöf.
Milliverkanir Engar þekktar.
Varúðarorð Lyfið er ekki ætlað karlmönnum né börnum yngri en 18 ára.
Ef vart verður við einkenni eins og hita, sársauka við þvaglát, krampa eða blóð í þvagi við notkun á lyfinu er ráðlagt að hafa samband við lækni. Sortulyng getur valdið því að þvag verði græn-brúnt að lit.
Ofskömmtun Engin tilfelli skráð.

 

Klínískar rannsóknir

Virkni og öryggi sortulyngs byggist á áralangri notkun plöntunnar til lækninga. Ekki hafa verið gerðar klínískar rannsóknir á áhrifum sortulyngs eins og sér á þvagfærasjúkdóma, en gerðar hafa verið rannsóknir á virkni jurtarinnar í blöndum með öðrum jurtum. Rannsóknir sortulyngs á dýrum sýna fram á bakteríuhemjandi virkni, en ljóst er að þörf er á frekari rannsóknum til að staðfesta virkni sortlyngs á þvagfærasýkingar í mönnum.

Heimildir

Pharmaceutical Press Editorial Team. 2013. Herbal Medicines, 4th Edition. Pharmaceutical Press, London, UK

Lyfjaforskrift Evrópsku lyfjamálastofnunarinnar

Matsskýrsla Evrópsku lyfjamálastofnunarinnar

 

Tengdar vörur

lyngonia

Lyngonia við endurteknum þvagfærasýkingum