Í Grimms-ævintýrum er fræg sagan af stúlkunni Garðabrúðu sem hlaut þau grimmilegu örlög að vera gefin af foreldrum sínum grimmri norn sem lokaði hana inni í háum turni þar sem hún fékk ekki að hitta neinn. Móðir stúlkunnar var svo sólgin í jurtina garðabrúðu á meðgöngunni að hún sendi föðurinn í garð nornarinnar til að sækja knippi. Hann var staðinn að verki og lofaði norninni að hún mætti eiga ófædda barnið ef hann bara mætti taka svolítið af garðabrúðu handa konu sinni. Það hefur sennilega verið dýrasta verð í sögunni fyrir lækningajurtir.
Garðabrúða er fáanleg á Íslandi undir heitinu Sefitude en það er viðurkennt jurtalyf unnið úr rót garðabrúðu og er ætlað til að draga úr vægum kvíða og svefntruflunum. Lyfið er fáanlegt án lyfseðils í öllum helstu apótekum og er mikið notað af fólki sem á erfitt með svefn.
(meira…)