Smaronia™

Smaronia er einstök meðferð við leggangaþurrki. Þykkir slímhúð legganga, dregur úr óþægindum við samfarir og öðrum einkennum sem geta tengst tíðarhvörfum.

Ein túpa er notuð daglega í minnst 7 daga. Til að viðhalda verkuninni er ráðlagt að nota Smaronia þriðja hvern dag eða eftir þörfum.

Algengar spurningar um Smaronia

Fróðleikur:

Algengar spurningar um píkuna

Hér getur þú lesið þér til um einkenni leggangaþurrks

Fæst í öllum apótekum og í eftirtöldum netverslunum. Þú pantar og færð sent heim.

Product description

Smaronia™ hefur viðurkennda virkni og er ætlað til meðferðar á leggangaþurrki, slímhúðarrýrnun og öðrum óþægindum í leggöngum (s.s kláða, sviða, sársauka við samfarir). Smaronia róar, smyr, nærir og veitir raka sem saman stuðla að því að bæta og viðhalda heilleika slímhúðar.

Smaronia™ varðveitir náttúrulegan raka legslímhúðar með því að mynda varnarhimu yfir viðkomandi svæði. Himnan verndar svæðið frá ertandi efnum og árásum sýkla úr umhverfinu, en tíðni sýkinga í leggöngum eykst um og eftir tíðahvörf. Inniheldur rauðsmára sem að stuðlar að náttúrulegu hormónajafnvægi í leggöngum.

Smaronia™ er margprófað og sýna niðurstöður klínískra og forklínískra rannsókna að um er að ræða áhrifaríka meðferð við kláða, þurrk og særindum í leggöngum ásamt því að bæta heilbrigði slímhúðar.

Useful Information

Notist í leggöng, helst útafliggjandi fyrir svefn. Þvo skal hendur fyrir notkun. Endi túpusprotans er snúinn af. Allur túpusprotinn er settur inn í leggöng þar sem túpan er tæmd alveg og henni haldið samanklemmdri á meðan sprotinn er dreginn út. Ein túpa er notuð daglega í minnst 7 daga, í alvarlegri tilfellum í allt að 21 dag. Til að viðhalda verkuninni er ráðlagt að nota Smaronia þriðja hvern dag eftir það eða eftir þörfum. Sumar konur upplifa vægan sviða í upphafi meðferðar sem hverfur þegar líður á meðferðina. Engar þekktar milliverkanir eru við lyf.

Active Ingredients and Functions

SIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum silikondíoxíð míkrókristöllum. Það myndar varnarhjúp sem viðheldur raka í slímhúð legganga, veitir vörn gegn ertandi efnum og örverum og myndar þar með kjöraðstæður fyrir slímhúðina að endurnýja sig.
Rauðsmári (red clover) inniheldur efnasambönd sem stuðla að þykknun og auknum teygjanleika slímhúðar og róar, smyr og nærir slímhúðina.

Hýalúrónsýra er afburða rakagjafi ásamt því að hún styður við myndun varnarhjúpsins.

 

*Rannsóknir sýna að silfurjónir í SIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.007% míkrósilfurjónir.